29.03.1940
Neðri deild: 25. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í B-deild Alþingistíðinda. (1054)

41. mál, íþróttasjóður

Thor Thors:

Ég vil aðeins leyfa mér að mótmæla þessu. Það stendur skýrt í þessari till., að 50 þús. kr. eigi að ganga til íþróttasjóðs. En það kemur ekkert því máli við, þó að meira sé varið í fjárl. til íþróttamála í heild. Í till. fjvn. eru áætlaðar 30 þús. kr. til sjóðsins; hér er því um 20 þús. kr. aukningu að ræða.