18.03.1940
Efri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 520 í B-deild Alþingistíðinda. (1233)
42. mál, húsaleiga
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti! Ég þakka n. fyrir, að hún hefir tekið til athugunar það, sem ég minntist á við 2. umr. málsins, og er ég ánægður með hennar lausn á því máli.
Svo er það till. á þskj. 125, sérstaklega b-liður, sem ég er að nokkru leyti með og að nokkru leyti ekki. Ég held, að það þurfi að orða hann dálítið öðruvísi til þess að hann nái því, sem ég býst við, að honum sé ætlað að ná. Ef till. er samþ. eins og hún kemur fyrir, þá skilst mér, að húseigandi, sem á hús, sem í eru 3 íbúðir, sem allar eru leigðar út og hver íbúð 3 herbergi, geti breytt til og leigt hverja út með 2 herbergjum og einu herbergi sér, og yfir þetta eina herbergi nái þá ekki húsaleigul. á neinn hátt. Það er ekki leigt út frá íbúð, heldur af húseiganda sjálfum. (MJ: Þá ná l. til þess). Það er leigt frá íbúð, en ekki af þeim, sem hefir íbúðina á leigu. Ég held þess vegna, að það væri réttara að orða b-liðinn um.
Það er annars svo mikið umstang við þessi einhleypingsherbergi, að þurfa stöðugt að vera í nefndinni með þau og láta stimpla nýja og nýja samninga fyrir þennan og þennan mánuð. Það er sömuleiðis viðurkennt, að mikið af einstaklingsherbergjum stendur autt mikinn tíma af árinu. Þess vegna hefi ég lagt til, að b-liður orðist þannig, að það næði ekki til leigu á einstökum herbergjum, sem leigutaki eða húseigandi leigir út frá sinni eigin íbúð. Eins og vitað er, eru það margir, sem þrengja að sér og fjölskyldu sinni tíma og tíma og leigja út af íbúð sinni, og vil ég því leggja til, að þessi brtt. mín verði samþ., og afhendi ég hana nú forseta.