18.03.1940
Efri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 521 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)
42. mál, húsaleiga
*Magnús Jónsson:
Aðeins örstutt aths. Ég vildi bara þakka hæstv. ráðh. fyrir, að hann svaraði mér um það, hvaða möguleikar væru fyrir nýbyggingum í bænum, það gæti ekki komið til nema tvennskonar leiga, og sú leiga getur ekki staðizt. Unga fólkið, sem þarf að byggja í framtíðinni, fær bara það svar, að það geti verið ánægt, því það hafi ekki verið farið svona með aðra, það fær ekki þá huggun, að sætt sé sameiginlegt skipbrot. Ég veit, að tíminn leiðir þetta í ljós, og að nýbyggingar geta ekki stöðvazt, svo að þessu verður að breyta, þótt það verði ekki núna. Um brtt. hv. 1. þm. N.-M. get ég sagt, að ég get fallizt á hana. Einstök herbergi mættu vera undanþegin lögunum, og var það það, sem ég átti við, þegar ég talaði um að leigja út frá íbúðum. Það er laukrétt, sem hann sagði, að fjöldi af einstökum herbergjum standa auð töluverðan part af árinu, m. a. vegna þess, að mörg hundruð, já, mörg þúsund manns koma til Reykjavíkur og leigja herbergi að vetrinum, sem svo er ekki hægt að leigja út að vorinu, og standa þau þá auð hálft árið. Það er þess vegna óeðlilegt, að hið sama gildi um þau og heilar íbúðir.