15.04.1940
Neðri deild: 36. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (1334)

97. mál, loðdýrarækt og loðdýralánadeild

Frsm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég vil aðeins leggja til, að málið verði samþ. eins og það kemur frá hv. Ed. Það hefir að vísu verið gerð smávægileg breyt. á því, en ég sé ekki ástæðu til að hrekja það milli d. hennar vegna.