28.03.1940
Efri deild: 23. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)

77. mál, ríkisútgáfa námsbóka

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég kvaddi mér hljóðs vegna þess, að ég sé, að hvorki form. né frsm. eru hér staddir. Tel ég ekki rétt að ganga svo frá þessu máli við þessa umr. án þess að þeir, sem framsögu hafa í málinu, geti gert grein fyrir því. Það skal játað, að við 1. umr. var þess óskað, að fyrir lægju upplýsingar um fjárhagsástand námsbókasjóðs. Þetta hefir dregizt úr hömlu, og veit ég ekki hvers vegna. Ég myndi stuðla að því, að þessar upplýsingar fengjust, og vildi því beina þeim tilmælum til hæstv. forseta. að hann tæki málið af dagskrá.