17.04.1940
Neðri deild: 41. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (1502)

22. mál, skógrækt

*Pétur Ottesen:

Af því að frsm. n. er ekki kominn, þá vil ég skýra frá því, að það hefir orðið að samkomulagi í n. og við þá flm., sem fluttu hér brtt., sem rætt var um á síðasta fundi, að n. flytji brtt. við 17. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir, að tekið sé út úr greininni það ákvæði, sem lagt er til að breyta með brtt. þeirra hv. þm. Rang. Og það var einn liður í þessu samkomulagi, að þeir tækju aftur sínar brtt. N. leggur því til, að brtt. á þskj. 485, sem nú hefir verið útbýtt á þessum fundi og ég hefi hér minnzt á, verði samþ., og þar með er fengin lausn á því deiluatriði, sem hér lá fyrir, þegar þetta mál var síðast til umr. hér í hv. d.