01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (1629)

31. mál, tollskrá o. fl.

Sigurður E. Hlíðar:

Ég hefi leyft mér að bera hér fram litla brtt. í sambandi við þetta frv. Henni var útbýtt í dag á þskj. 287. Þar fer ég fram á, að í 77. kafla verði verðtollinum breytt þannig á glerum, að fyrir „30“ í 1. tölul. 1. gr. l. komi: 10 — og fyrir „50“ í 5. tölul. komi: 20.