22.04.1940
Efri deild: 44. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (1650)

31. mál, tollskrá o. fl.

*Erlendur Þorsteinsson:

Þetta frv. er komið aftur til Ed. frá Nd., og höfðu verið gerðar á því nokkrar breyt. þar. Fjhn. Ed. hefir athugað þetta frv. á ný, og getur hún fallizt á þær breyt., sem gerðar hafa verið í Nd., en ber þó fram eina brtt. á þskj. 529, sem er um það, að tollur af prjónavoðum verði 20% í stað 30%. Fjhn. vill mæla með brtt. 529 og einnig, að frv. að öðru leyti verði samþ.