22.04.1940
Efri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)
119. mál, bráðabirgðatekjuöflun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
*Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Við 1. umr. þessa máls skýrði hv. þm. Hafnf. málið, og tel ég óþarft að taka það upp, sem hann sagði þá. Fjhn. hefir haft málið til athugunar, og lítur hún svo á, að Hafnarfjarðarkaupstað sé þörf á því að fá að halda þeim rétti, sem hann hefir haft til þess að leggja nokkurt gjald á umferðina milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, þrátt fyrir það, þó að fyrirhuguð breyt. verði gerð um útsvarsgreiðslu togarafyrirtækja. Og þrátt fyrir það, þó að n. kunni ekki sem bezt við þessa álagningaraðferð, þá lítur hún svo á, vegna nauðsynjarinnar, sem Hafnfirðingum er á þessu, að rétt sé að samþ. þetta frv., og mælir með því óbreyttu.