23.04.1940
Neðri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (1716)

46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Ásgeir Ásgeirsson:

Ég geri ráð fyrir, að hæstv. atvmrh., sem síðast talaði, hljóti að viðurkenna það, að það séu einhverjir og ekki fáir neytendur í Alþýðusambandi Íslands.

Fyrir okkar leyti vil ég segja það, að þessi brtt. er borin fram með það fyrir augum, að enginn hinna þriggja flokka, er styðja núv. ríkisstj., verði afskiptur um áhrif í þessari n., heldur eigi þeir allir þar nokkurn hlut að máli. Það er þetta, sem liggur bak við það, að við vildum samband við Sjálfstfl. um þetta mál, en ekki bein pólitík.