19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (1794)

70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana

1) Viðskmrh.:

Ég tel ekki fært að gera mun á launum manna eftir því, hvort þeir eru einhleypir eða hafa fyrir fjölskyldu að sjá. Ég tel þá réttara að breyta skattalöggjöfinni, svo að einhleypir menn borgi hærri skatta. Ég segi því nei.