15.04.1940
Efri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (1889)
16. mál, vegalög
*Jónas Jónsson:
Þó að ég sé ekki nema einn af liðsmönnum hv. 1. þm. N.- M. í þessari n., sem getið var um, tek ég undir við hv. síðasta ræðumann, sem við köllum stundum í ógáti þm. Dal., því að ég hefi oft áður haldið fram rétti Dalasýslu. Ég lít svo á sem hann, að rétt sé, að tekið sé jafnt tillit til allra héraða, er fé til vega er úthlutað. Þætti mér gott, ef hann kæmi fram með upplýsingar um þetta, sem ég hefi ekki getað aflað mér, þó að ég sé ekki alveg ókunnugur í Dalasýslu, og vona ég, að ég muni geta stutt hann í þessu máli.