23.02.1940
Neðri deild: 4. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í B-deild Alþingistíðinda. (195)

5. mál, innheimta ýmissa gjalda 1941 með viðauka

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Hv. deildarmenn kannast við frv. þetta, og tel ég því, að ekki þurfi um það langa framsögu. Frv. er aðeins framlenging á gildandi lögum, en eins og nú horfir er ekki unnt að gera ráð fyrir, að hægt verði að komast af án þessara tekjuauka á næsta ári.

Að lokinni þessari umr. vænti ég, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.