18.03.1940
Neðri deild: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1962)
Afgreiðsla mála úr nefndum
*Einar Olgeirsson:
Ég bar fram frv. í byrjun þessa þings ásamt hv. 4. landsk., og var því vísað til hv. allshn. Frv. fjallaði um mál, sem flestir hafa mikinn áhuga fyrir, sem sé kaupgjaldsmálin. Ég hefi ekkert heyrt frá hv. allshn. síðan hún fékk málið til meðferðar, og þætti mér því vænt um, ef hæstv. forseti vildi grennslast eftir því, hvort hv. n. getur ekki farið að skila áliti, þar sem málið er búið að liggja hjá henni í meira en mánuð.