23.04.1940
Neðri deild: 50. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (1976)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Þetta mun vera síðasti fundur deildarinnar að þessu sinni. Ég vil fara fram á það við hv. þdm., að þeir veiti mér heimild til að undirskrifa gerðabók ásamt riturum. Skoða ég það sem samþ., ef enginn mælir því í gegn.

Vil ég svo þakka hv. þingdeildarmönnum einkar vel fyrir góða samvinnu á þinginu og hvað þeir hafa verið mér góðir í öllu samstarfi. Ég vil óska öllum utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu. Ég vil vona, að við hittumst allir heilir á næsta þingi.