05.04.1940
Neðri deild: 31. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (2098)

45. mál, tekjuskattur og eignarskattur af vaxtafé

Skúli Guðmundsson:

Snemma á þessu þingi bar ég, ásamt hv. 2. þm. Skagf., fram frv. til l. um innheimtu tekju- og eignarskatts af vaxtafé. Fjhn. fékk frv. til athugunar. Fyrir nokkru hefir minni hl. þeirrar n. skilað áliti. Hinsvegar hefir enn ekki komið álit frá meiri hl. n., og þar sem áliðið er þings, þá vildi ég óska þess, að hæstv. forseti vildi taka málið á dagskrá, svo upplýst verði um vilja hv. dm. í þessu máli og það geti fengið afgreiðslu.