01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2189)

71. mál, raforkuveitusjóður

Skúli Guðmundsson:

Ég hefi ekki orðið var við, að útbýtt hafi verið frv. eins og gengið var frá því við 2. umr., en á því voru þá gerðar nokkrar breyt. Ég hefi veitt því athygli, að í 4. gr. frv. er talað um rafveitulánasjóð, en nú er gert ráð fyrir, að frv. heiti frv. til l. um raforkuveitusjóð. Ég vildi þess vegna bera fram skrifl. brtt. þess efnis, að frv. heiti frv. til l. um rafveitulánasjóð, eins og upphaflega var gert ráð fyrir.