01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í C-deild Alþingistíðinda. (2192)

71. mál, raforkuveitusjóður

*Frsm. (Jón Pálmason):

Það mun vera rétt athugað hjá hv. þm. V.-Húnv., að það hefir slæðzt inn í 4. gr. rafveitulánasjóður í staðinn fyrir raforkuveitusjóður. Vildi ég fara fram á, að þetta yrði leiðrétt. Að fara að breyta nafni frv. vegna þessa nær engri átt. Þetta er leiðréttingaratriði. Ef forseti treystir sér hinsvegar ekki til að leiðrétta þetta án brtt., þá mun ég bera hana fram.