27.03.1940
Neðri deild: 23. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (2217)

81. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja

Skúli Guðmundsson:

Út af till. hv. 6. þm. Reykv. um að vísa þessu máli til sjútvn. vil ég benda á það, að þegar Alþ. setti þau l., sem í þessu frv. er lagt til, að verði afnumin, þá var það mál til meðferðar hjá fjhn., og sömuleiðis þær breyt., er gerðar voru á þeim l. á síðasta Alþ. Þess vegna vil ég styðja þá till. hv. flm., að þessu máli verði vísað til fjhn., því að ég tel eðlilegast, að bað fari til þeirrar sömu n„ sem áður hefir fjallað um þessi mál.