18.04.1940
Neðri deild: 43. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2255)

105. mál, verðlagsuppbót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum o. fl.

Jón Pálmason:

Eins og ég hefi lýst í umr. og fram hefir komið í atkvgr. um hitt málið, get ég hvorugt málið samþ. í því formi, er þau hafa nú. Hinsvegar get ég ekki fallizt á hina rökst. dagskrá og segi því við henni nei.

1. gr. samþ. með 14:8 atkv.

2.–6. gr. samþ. með 14:4 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 15:8 atkv.

Á 45. fundi í Nd., 19 apríl, var frv. tekið til 3. umr. (A. 362, 506).