19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2259)

105. mál, verðlagsuppbót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum o. fl.

Thor Thors:

Ég vil leyfa mér að spyrja hv. 1. þm. Rang., hvort fjhn. hafi hugsað sér að afgr. brtt. sínar á morgun, því að eins og kunnugt er, líður óðum að þinglausnum, og ég óttast, að málið fái ekki afgreiðslu þingsins, ef það tefst enn lengi í þessari hv. d,, en það á eftir að fara til Ed. og í gegnum 3 umr. þar.