29.02.1940
Efri deild: 7. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2340)

21. mál, húsnæði

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég ætla ekki að gagnrýna þetta frv. eða svara hv. frsm., en mér þykir hlýða að geta þess, að allshn. hefir nú borizt frv. frá ríkisstj., og fjallar það um sama efni. Býst ég við, að n. muni birta það hér í hv. d. í dag eða á morgun. Mér þótti rétt að geta þessa hér, þar sem málið er aðkallandi, en þetta frv., sem hér liggur fyrir, hinsvegar ekki eins aðkallandi fyrir þá sök, að málið er þegar í nefnd.