23.04.1940
Sameinað þing: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í D-deild Alþingistíðinda. (2585)

24. mál, innflutningur á heimilisnauðsynjum farmanna

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti! Mér skilst, að það sé atkvgr., sem er að fara fram, svoleiðis að það sé um seinan að fara að biðja um frestun atkvgr., þegar atkvgr. er byrjuð. Þetta mun vera síðasti fundur í Sþ., og ég mótmæli því þess vegna, að frestað verði þessari atkvgr., sem þegar er hafin.