13.04.1940
Neðri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

85. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

*Sigurður Kristjánsson:

Ég var búinn að mæla fyrir brtt. mínum við þetta frv. hér við 2. umr. en skv. ósk fjhn. tók ég till. aftur til þessarar umr. og óska eftir, að þær verði bornar upp, en mun ekki lengja umr. um þær nema sérstakt tilefni gefist.