13.04.1940
Neðri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

85. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Forseti (JörB):

Ég vil beina því til manna, að þeir tali prúðmannlega og viðhafi ekki móðgandi orð um þm., sem ekki eru í deildinni og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér.