16.04.1940
Neðri deild: 39. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (289)
117. mál, veðurfregnir
*Ásgeir Ásgeirsson:
Mér dettur aðeins í hug að spyrja hæstv. ráðh., hvort ekki væri réttara að orða frv. svo, að fresta skuli framkvæmd þessara laga þar til ríkisstj. ákveður annað. Ég tel ekki ástæðu til að bera fram um það brtt., ef hæstv. ráðh. telur þar óþarft. (Forseti: Stj. getur alltaf, ef ástæður breytast, gefið út bráðabirgðalög um að fella niður frestun á framkvæmd l.).