30.03.1940
Sameinað þing: 9. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (337)

88. mál, fjáraukalög 1938

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Ég hefi ekki mikið um þetta mál að segja. Frv. er samið eftir landsreikningnum og í samræmi við aths. endurskoðenda. Landsreikningurinn hefir að vísu ekki komið fram ennþá, en það er búið að prenta hann og hann verður lagður fram næstu daga.

Legg ég svo til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.