13.03.1940
Neðri deild: 16. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

50. mál, bann gegn jarðraski

*Emil Jónsson:

Ég skal ekki tefja málið. Mig langar aðeins að spyrja hv. frsm. að því, hvort n. hafi ekki borið þetta frv. saman við gildandi l. um þetta efni. Mér fannst hv. flm. tala eins og engin lagasetning væri til um þetta atriði. En svo er ekki, því það eru til l. um bann gegn jarðraski. Ég hafði ætlað, að n. hefði borið þetta saman, en sé ekki mót á því í nál.