16.03.1940
Neðri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (560)

59. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Skúli Guðmundsson:

Ég sé, að form. sjútvn., sem flytur þetta mái, er ekki staddur í deildinni. Ég vil leyfa mér að fara fram á það við hæstv. forseta, að málinu verði frestað nú, vegna þess að í frv. er lítilsháttar villa, sem ekki hefir verið leiðrétt, en æskilegt væri, að fengist leiðrétting á, áður en málið er afgr. frá deildinni.