01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (669)
30. mál, erfðaábúð og óðalsréttur
*Frsm. (Steingrímur Steinþórsson) :
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þessa brtt., en landbn. leggur til, að gerð sé lítilsháttar breyt. á i. um erfðaábúð og óðalsrétt. Er það á 2. gr. þeirra og gert samkv. ósk þess fulltrúa í ráðuneytinu, sem hefir með framkvæmd þessara 1. að gera. Það er ekkert tekið fram um það í l., hver skuli greiða brunabótagjald af þeim húsum, sem eru á jörðum, sem leigðar eru til erfðafestu, en talið er eðlilegt, að ábúandi greiði brunabótagjaldið sjálfur, þar sem með tímanum er ætlazt til, að hann verði sjáifur eigandi húsanna á þeirri jörð, er hann situr, þótt það sé svo nú, að ríkið eigi hluta í eða öll hús á þessum jörðum. Því fer frv. fram á, að sett verði í l., að einstaklingarnir, sem á jörðunum búa, annist greiðslu á þessum gjöldum, og hefir landbn. fallizt á þessa skilgreiningu, að ábúandinn greiði brunabótagjaldið, en ríkið beri kostnaðinn af virðingu, sem fram verður al fara í þessu skyni.
Sé ég svo ekki ástæðu til að segja meira.