18.03.1940
Neðri deild: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (697)

17. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Frsm. (Helgi Jónasson):

Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta frv., en vísa til þess, sem sagt var við 1. umr. málsins. Grg. gefur til kynna, hvaða breyt. er hér farið fram á, að gerð verði á l. Samgmn. hefir athugað frv. og orðið sammála um að leggja til, að það verði samþ. óbreytt. Ég óska þess svo, að málið fái skjóta og góða afgreiðslu hér í hv. d.