27.03.1940
Neðri deild: 23. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (852)
73. mál, dómkirkjan í Reykjavík og skipting Reykjavíkur í prestaköll
*Gísli Sveinsson:
Herra forseti! Ég á litla brtt. við þetta frv. á þskj. 198. Brtt. er að vísu stíluð við 2. gr. frv., en það má segja, að í síðara liðnum sé um orðabreyt. að ræða í samræmi við aðalbreyt. Það er farið fram á, að kirkjustjórninni sé veitt heimild til að skipta Rvíkurbæ ekki aðeins í 4 sóknir eða prestaköll, eins og í frv. er ætlazt til að gert verði, heldur 6, sem í raun og veru er það rétta.
Eins og hv. d. er kunnugt, þá er gert ráð fyrir 4 prestaköllum í frv., en prestar eiga að vera 6, því við 2 þeirra, í Miðbæjar- og Skólavörðuprestakalli, eiga að vera 2 prestar við hvort. Brtt. fer fram á, að kirkjustj. sé heimilt að skipta bænum í sérstök prestaköll, 4–6, ef það þætti hentara, að hver prestur hefði sitt afmarkaða prestakall.
Það hafa komið fram rökstuddar raddir um það frá hlutaðeigendum, prestum og öðrum, að það geti í framtíðinni orðið mjög erfitt að hafa sama prestakall skipað 2 prestum, sem í raun og veru viti ekki, hvað hvor eigi af söfnuðinum, svo það gæti komið til, að þeir færu að rífast um sóknarmeðlimina sér til handa.
Þetta breytir ekki neinum ákvæðum í frv., þó að þessi heimild verði samþ., og hún er samkvæm sjálfri sér og í raun og veru samkvæm því, sem frv. annars leggur til, að 6 verði prestarnir, þó prestakallasóknirnar eigi ekki að vera nema 4. Brtt. fer fram á, að í staðinn fyrir 4 sóknir verði heimilt að skipta bænum í 4–6 sóknir. Það gæti hugsazt, að bænum væri ekki skipt í 6 sóknir að svo stöddu, og þá væri það líka heimilt.
Af þessari till. leiðir svo það, að talan 4 í 3. málsgr. fellur niður, því hún er þá óþörf, þar sem búið er að slá því föstu, að prestaköllin skuli vera 4–6.
Ég vænti svo þess, að hv. d. fallist á þessa brtt. og frv. verði síðan samþ. út úr hv. d.