17.06.1941
Neðri deild: 82. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (124)

Starfslok deilda

forseti (JörB) :

Starfi deildarinnar er nú lokið að þessu sinni.

Ég vil þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir, hvað þeir hafa gert mér auðvelt allt mitt starf hér í þessari deild nú, eins og svo oft áður, og um leið óska ég þeim allra heilla og blessunar á komandi tíð. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu.