06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)

91. mál, tannlæknakennsla við læknadeild háskólans

Frsm. (Vilmundur Jónsson):

Um þetta frv. er ekkert að segja fram yfir það, sem í grg. stendur, annað en að það hefur verið athugað í tveim n. d., sem báðar hafa komizt að þeirri niðurstöðu að mæla með frv. Þó hefur aðeins meiri hl. menntmn. fallizt á að lýsa fylgi sínu við frv., en allshn. samþ. það í einu hljóði. Ég vænti því, að frv, fái góðar undirtektir í hv. deild.