12.05.1941
Efri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (1736)
123. mál, læknisvitjanasjóður
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti! Það eru tvö atriði, sem mig langar til að benda á í þessu máli og biðja n. að athuga þau milli umr.
Það er í fyrsta lagi viðvíkjandi 3. gr., þar sem segir: að læknisvitjunarstyrkurinn skuli vera áætlaður á fjárl. Ég ætla, að sérstökum hreppum sé ætlaður styrkur inn, en ekki sérstökum héruðum, og að það þurfi því að orða þessa gr. öðruvísi.
Í öðru lagi álít ég, að þetta 1000 kr. hámark um greiðslu úr ríkissjóði sé of lágt, þegar litið er á það, að t. d. í einu læknishéraði, sem er Stykkishólmur, sem nú nýtur mests styrks úr ríkissjóði, þar njóta þrír hreppar í héraðinu styrks, er nemur 950 kr. Og það er miklu meiri ástæða fyrir þessa þrjá hreppa, sem hafa þessar 950 kr. á fjárl., að halda í það framlag heldur en að fara að mynda sjóð fyrir allt héraðið og fá þá kannske í mesta lagi 1000 kr. framlag. Það er því enginn ávinningur fyrir héraðið í heild að mynda slíkan sjóð.
Í Ólafsvíkurhéraði eru hreppar komnir upp í 800 kr. með læknisvitjanastyrkinn. Þeir mundu aldrei fara að hlaupa upp til handa og fóta til þess að fá 1000 kr. úr ríkissjóði handa öllu héraðinu í heild. Ég held að það sé mjög athugandi, hvort eigi ekki að hafa þessa upphæð hærri í fyrstu; ég er alltaf á móti harmonikul., sem enginn veit fyrir sig fram, hve mikil útgjöld hafa í för með sér. Þó finnst mér, að ég geti hér gert undantekningu, að þetta frv., verði að l., þó að ég sé á móti harmonikul.