17.03.1941
Neðri deild: 18. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (1748)

25. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Fjmrh. (Jakob Möller) :

Ég vil aðeins bera fram leiðréttingu út af því, sem hv. þm. Ísaf. sagði, þar sem hæstv. atvmrh. er ekki viðstaddur, en hv. þm. hallaði réttu máli. Það var rangt, að stækkun verksmiðju Siglufjarðarbæjar hafi stöðvazt vegna andstöðu hæstv. atvmrh. Þar komu aðrar ástæður til greina, og skil ég ekki í öðru en hv. þm. sé kunnugt um þetta.