14.05.1941
Efri deild: 60. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

25. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Frsm. (Jóhann Jósefsson) :

Herra forseti! Ég hef leyft mér að leggja fram brtt. við frv. í samræmi við þann skilning, sem ég vildi leggja í það í ræðu minni hér í d. við 2. umr., en mætti mótmælum. Með brtt. er það skýrt tekið fram, að rýmkað er úr 25% í 50% um það gjald, sem leggja má á verksmiðjurnar. Um þetta þarf ég ekki fleira að ræða.