06.05.1941
Efri deild: 53. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (1875)

126. mál, veðmálastarfsemi í sambandi við kappreiðar

Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Það er þá staðfest, ef brtt. nær samþykki, að í frv. skuli leggja þann skilning, sem ég lýsti yfir, að ég teldi óhjákvæmilegt að leggja í það, — og miða við sjómannadaginn eða þann dag, sem til kappróðursins yrði tekinn, ef veðurástæður neyða til frestunar.