06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)
79. mál, landnám ríkisins
Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :
Ég vildi geta þess, að mér hafði sézt yfir það, að í brtt. landbn. á þskj. 252 er smáprentvilla. Stendur þar í 1. línu 1. brtt.: „við þorp og kaupstaði í sveitum“, en á að vera : við þorp og kaupstaði og í sveitum. — Orðið „og“ hefur þarna fallið niður, og vil ég biðja hæstv. forseta að láta leiðrétta þetta í prentun.