06.05.1941
Neðri deild: 52. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (1959)
119. mál, verðlagsuppbót til héraðsgagnfræða og húsmæðraskóla
Bjarni Bjarnason:
Ég vildi gera þá fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., hvort hún teldi, að ekki sé nægilega greinilega gengið frá þessu frv., að viðbættum þeim ummælum, sem fram hafa komið, bæði í ræðu hv. flm. við 1. umr. málsins, hv. þm. V.-Ísf., og í því, sem stendur í nál. fjhn., sem sé, að ætlazt sé til, að greidd verði uppbót fyrir 1940. Væri mér kært, ef hæstv. fjmrh. vildi segja sitt álit á þessu, og væri einnig æskilegt, ef hæstv. viðskmrh. léti þess getið, hvort hann meinti ekki einmitt þetta með sinni brtt.