13.05.1941
Neðri deild: 58. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)
101. mál, byggingar og landnámssjóður
Pétur Ottesen:
Ég hafði skrifað undir nál. með fyrirvara, sem er miðaður við 1. gr. frv., þar sem um er að ræða, hvernig stjórn nýbýlasjóðs eigi að vera skipuð. Ég hef ekkert við að athuga breyt., sem þar er gerð á stjórn hans frá því, sem nú er. En ég hafði hugsað mér, að hagkvæmt væri að fela stj. þessa. sjóðs stj. Búnaðarbanka Íslands. Búnaðarbankinn hefur nú með höndum reikningshald fyrir byggingar- og landnámssjóð og útborganir, og því gæti þetta verið hagkvæmt líka og til sparnaðar. T. d. hefur Búnaðarbankinn sína fulltrúa og eftirlitsmenn úti um land, og mundu þeir þá jafnframt geta starfað fyrir nýbýlasjóð. Auk þess liggur starfsemi sjóðsins á sama sviði og starfsemi Búnaðarbankans, þar sem um er að ræða lán til jarðræktar og húsabóta.
Það hefur ekki tekizt samkomulag í landbn. um að gera þessa höfuðbreyt., en ég hef til samkomulags við meðnm. mína fallið frá að bera fram brtt. í þessa átt. Vildi ég aðeins láta þetta koma fram til skýringar á þeim fyrirvara, sem ég hafði við undirskrift nál.
Ég tel, að það fyrirkomulag, sem nú á að hafa á stj. sjóðsins, sé til bóta frá því, sem er í gildandi l., og miði að góðu samstarfi um þetta mikla og þarfa mál.