05.06.1941
Neðri deild: 71. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (2369)
128. mál, sauðfjársjúkdómar
Gísli Guðmundsson:
Í tilefni af því, sem hv. Þm. Mýr. sagði hér síðast, skal ég geta þess, að fyrir mér hefur ekki vakað annað en það, að greiddur yrði mismunur á flutningi fjár með bifreiðum og venjulegum flutningi. En úr því að ég verð var við, að hv. landbn. leggur þennan skilning í till., vil ég fá tækifæri til að bera fram við hana skrifl. brtt., þar sem þetta er skýrt orðað, að í staðinn fyrir að „greiða kostnað“ komi: greiða aukakostnað við bifreiðaflutning sláturfjár. Mun ég leyfa mér að afhenda forseta skrifl. brtt.