12.06.1941
Neðri deild: 77. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (2510)

140. mál, bankavaxtabréf

Forseti (JörB) :

Mér hefur borizt skrifl. brtt. frá fjhn. við 23. gr. frv. svo hljóðandi: „Aftan við gr. bætist: hjá Landsbanka Íslands.

Eigi má þó verja fé ómyndugra til þess að kaupa bankavaxtabréf á hærra verði en ákvæðisverð þeirra er.“

Brtt. þessi er skrifl. og of seint fram komin, og þarf því tvöföld afbrigði.