25.04.1941
Neðri deild: 44. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (2533)

70. mál, Háskóli Íslands

Pálmi Hannesson:

Herra forseti! Við hv. 2. þm. Árn. eigum brtt. saman á þskj. 234, þess efnis, að 1. gr. frv. falli burt.

Við 1. umr. gerði ég grein fyrir afstöðu minni til þess, sem 1. gr. fjallar um, og gat þess, að ég byggist við að flytja ásamt öðrum brtt. um það. Öllum mun ljóst, hvað í brtt. felst, svo að ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það, aðeins vonast til, að frv. verði samþ. með þessari breyt.