03.05.1941
Efri deild: 50. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (2677)

136. mál, ófriðartryggingar

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson) :

Þetta frv. er flutt af allshn. fyrir tilmæli hæstv. atvmrh. og er allmikill lagabálkur. Ég hafði búizt við, að hæstv. ráðh. gerði grein fyrir því sjálfur. Það verður að segja hverja sögu eins og hún gengur, að það er svo skammt síðan frv. var útbýtt, og n. flutti það án þess að hafa lesið það yfir, að það hefur ekki gefizt tóm til þess að lesa það yfir, og því síður til þess að ræða það af nokkurri gagnrýni og þekkingu.

Ef hæstv. atvmrh. er hér ekki viðstaddur, þá hefði ég lagt til, að málið yrði tekið út af dagskrá.