14.06.1941
Neðri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (2703)

136. mál, ófriðartryggingar

Gísli Guðmundsson:

Ég skal aðeins geta þess út af ræðu hv. þm. Borgf., að ég hef skrifað undir nál. með aths. viðvíkjandi 7. og 21. gr. Sú aths. snertir einungis þau atriði, sem hv. þm. vakti máls á, og ég hafði hugsað. mér fyrir 3. umr., að þetta mál fengi nánari athugun hjá n., og þess vegna hafði ég ekki komið með brtt. við þessa umr., en mun gera það við 3. umr., ef ekki kemur neitt um það frá n. í heild.