14.06.1941
Neðri deild: 80. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (2705)

136. mál, ófriðartryggingar

Pétur Ottesen:

Það getur verið rétt, sem hv. frsm. sagði um þetta, en miðað við reynslu annarra þjóða, er fullkomlega varhugavert, að ríkissjóður leggi fram fé í þessu skyni. Ég er alveg sammála hv. þm. N.-Þ. um það, að slík ákvæði sem þessi séu tekin út úr frv., og ég er einnig fylgjandi því, að brtt. um þetta komi fram við 3. umr. málsins.