17.06.1941
Efri deild: 83. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (2834)
168. mál, ráðstafanir og tekjuöflunar vegna dýrtíðar og erfiðleika atvinnuveganna
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Það er ekki hægt að ganga algerlega fram hjá þessum ásökun um. Og það er þá fyrst, að málið sé óundirbúið. Það er vitað mál, að bæði hér og í öðrum löndum, þar sem lýðræði er fullkomlega fylgt, eru mál undirbúin fyrir þing, síðan í flokkunum og í nefndum. Og málin fá þar betri athugun, rannsókn og yfirvegun heldur en í umr. sjálfum í Þingsal. Og þar, sem flokkaskipun er viðurkennd, þá er þetta á allan hátt jafneðlileg og ég. vil segja eðlilegri og betri þingræðislegur undirbúningur á málum heldur en umræðurnar sjálfar í þingsal. Og það verður að koma fram í þingtíðindum, að þetta mál hefur verið rætt í flokkum. A. m. k. höfum við ráðh. Framsfl. lagt það á fyrstu fundum hvað eftir annað fyrir miðstjórnina og varið fleiri dögum til að ræða það. Enda hefur ekki komið fram kvörtun frá þm. Framsfl. um, að það hafi ekki verið gert. Og flokkurinn hefur hvað eftir annað kallað þá menn til ráðagerða, sem sitja í ábyrgðarmiklum fjármálastöðum fyrir flokkinn. Þess vegna vil ég alls ekki, að þessari staðhæfingu um slæman undirbúning sé ómótmælt. Ég geri ráð fyrir, að málið sé eitthvað svipað undirbúið annars staðar, því að það var rætt í ríkisstj. og gert ráð fyrir, að þannig væri frá því gengið. Málið var síðan lagt fyrir Alþ. eftir að það var rætt í ríkisstj., og satt að segja hefur hæstv. viðskmrh. ástæðu til að ætla, að frv. yrði samþ. óbreytt eða með aðeins tveim litlum breyt. Þetta er rétt að komi líka fram. Og þegar málið var tekið fyrir hér á Alþ. og ætlazt til, að n. í báðum d. fjölluðu um það jafnsnemma, þá vildi svo til — eftir því sem mér er sagt —, að sú þingn., sem átti að fjalla um það frá þessari d., var ekki viðstödd: Eftir að málið hafði verið rætt í tvo dagsparta og breytt í það horf, sem það var lagt fyrir Nd., þá var gengið út frá því, að fyrir því væri verulegur meirhluta þingvilji í báðum d. Og þegar gengið var frá málinu af hendi okkar flokks, var málið rætt á tveim fundum til að athuga, hvaða afstöðu flokkurinn gæti tekið.
Þannig var málið undirbúið. Ég vil ekki, að það standi ómótmælt, að ríkisstj., a. m. k. ég sem forsrh., vilji láta það koma fyrir, að nein þvingun sé á þm. lögð. Ég hef aldrei gert það í öll þessi ár, sem ég hef farið með völd, og mun ekki gera.
Að heimildir þessar séu víðtækar, þarf engum að þykja óeðlilegt. Engan þarf heldur að undra, þótt ekki liggi fyrir áætlun fyrir framtíðina, þar sem frv. er úr garði gert til að mæta óvissu. Því hefur verið líkt við láns- og leigufrv. í Bandaríkjunum. Það er ákaflega góð samlíking. Einmitt sú þjóð, sem berst fyrir lýðræðinu, gefur út slíkar heimildir, sem að vísu, ganga margfalt lengra en þetta frv. Hv. þm. hefur því líkt okkur við þá þjóðina, sem stendur einna fremst í fylkingu í baráttu fyrir lýðræði. Vegna óvissu tímanna verða slíkar þjóðir að gefa víðtækar heimildir sínum stjórnum.
Ég vil ekki ganga inn á að ræða efni þeirra till., sem liggja fyrir. Vil þó geta þess um. till. hv. 10. landsk., að hún er að efni til fyrir ríkisstj. nákvæmlega sama heimild og sú í frv. Þetta er allt lagt undir dóm ríkisstj., og hún á að meta þær ástæður, sem fyrir hendi eru. Hún getur því notað þessa heimild um 100%. Og þegar á að dæma um söguna, er rétt, að lesendur þingtíðinda geti borið þær. till. saman og séð, að hér er farið með rétt mál. Það er ekki hægt að benda á einn staf í brtt., sem hamli ríkisstj. að fara að á sama hátt og ef frv. verður samþ. óbreytt: Að slíkar till. séu svo ekki samþ., á að vera þetta reginhneyksli, að mér skilst, og jafnvel brot á öllu þingræði.
Enn fremur ber á það að líta, að málið tafðist af ófyrirsjáanlegum ástæðum í Nd., án þess að ég reki það.
Í sambandi við það að hv. 1. þm. Reykv. sagði að peningum þessum væri kastað í hít og að ekki ætti að vinna neitt fyrir þá, vil ég geta þess, að vel getur svo farið, ef sú framkvæmd tekst, sem hér á að stefna að, að við verðum færari um margar verklegar framkvæmdir síðar heldur en við munum verða, ef ekkert er reynt af þessu tagi til að afstýra því, sem vofir yfir okkar fjármálum, ef því fer fram, sem nú horfir.