12.05.1941
Neðri deild: 57. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í C-deild Alþingistíðinda. (2872)
27. mál, vörugjald fyrir Vestmannaeyjakaupstað
Frsm. minni hl. (Jón Pálmason) :
Við hv. 3. landsk. (StSt) teljum ekki ástæðu til að fella niður heimildina til þessarar skattheimtuaðferðar í Vestmannaeyjum og mælum því með samþykkt frv. Vestmannaeyjar hafa algera sérstöðu í þessu efni, því að þetta gjald getur engan veginn lagzt á aðrar sveitir eða héruð. Hv. Ed. hefur og fallizt á þetta frv., því að þaðan er það komið. Ég hef fengið upplýsingar um, að þetta er að vissu leyti deilumál innan bæjarfélagsins. Kommúnistar hafa verið því andvígir, en allir aðrir hafa talið það sjálfsagt.
Varðandi það, sem minnzt var á afgreiðslu hins svo nefnda Hafnarfjarðarmáls, þ. e. heimild til að leggja á mannflutningana milli Rvíkur og Hafnarfjarðar gjald, sem renni í bæjarsjóð Hafnarfjarðar, er það álit margra, að þessi mál ættu að fylgjast að, því að þau eru að mörgu leyti skyld. Og það er ósamræmi í því að samþ. heimildina til Hafnarfjarðar, en amast við henni fyrir Vestmannaeyjakaupstað. Að öðru leyti álít ég, að málið sé svo ljóst; að ekki þurfi að ræða það frekar.