10.06.1941
Neðri deild: 75. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í C-deild Alþingistíðinda. (2957)
57. mál, bygging sjómannaskóla
Frsm. (Finnur Jónsson) :
Þó að það væri freistandi að ræða um það, sem gerðist í gær, viðvíkjandi hafnarmálinu á Suðurnesjum, mun ég leiða slíkt hjá mér, þar sem búið er að binda hendur ríkisstj. í því máli. Það er rétt, að samkvæmt till. á ekki að veita fé úr ríkissj. fyrr en hafnarl. liggja fyrir, eins og hefur verið frá því að Alþ. byrjaði að veita til hafnargerða. Ég lofaði því, að ég skyldi ekki hafa umr. langar, og ég skal halda mér við það loforð. Ég vil aðeins benda hæstv. atvmrh. á það, að sá undirbúningur, sem hér er gert ráð fyrir í frv. um sjómannaskóla, mundi alveg verða eftir á næsta ári, ef ekki yrðu samþ. l. um byggingu sjómannaskóla nú á þessu þingi. Það, sem hægt er að gera nú, yrði allt eftir, þannig að það hníga öll rök að því, að till. hæstv. atvmrh. sé fram borin til þess að fresta málinu um byggingu sjómannaskóla, a. m. k. eins og frá henni er gengið. Og færi það svo, að fjárhagsástæður versnuðu, þá yrði að fresta byggingunni um óákveðinn tíma. Þessu getur hæstv. atvmrh. á engan hátt mótmælt: Hvað viðvíkur undirbúningi þessa máls að öðru leyti, fæ ég ekki betur séð en að gert sé ráð fyrir, að þarna séu kvaddir til ráða allir þeir sérfræðingar, sem líkur eru til, að bezt hafi vit á þessum málum, nema húsameistari ríkisins. En til hans getur að sjálfsögðu sú n. leitað, sem fær málið til meðferðar. Sjútvn. Ed. hefur og í ráðum með sér um breyt. á frv. meðal annars skólastj. stýrimannaskólans, sem mjög hefur hugsað þessi mál og er þeim allra manna bezt kunnugur. Ég get ekki á það fallizt, að það hnígi nein rök að því, að það beri að samþ. hina rökstuddu dagskrá hæstv. ráðh., heldur beri að samþ. frv., þar sem það er sýnt, að mikill meiri hl. þm. vill, að málið nái fram að ganga á þessu þingi. Menn deila um það, hvort þm. eigi að hafa rétt til þess að láta sínar skoðanir í ljós og fylgja þeim, eða hvort ríkisstj. eigi að taka allan rétt af þm. Ég fyrir mitt leyti mótmæli því algerlega, að ríkisstj. eigi að taka þennan rétt af þm. eða rýra hann á nokkurn hátt.